Í gær var fyrsti veiðidagurinn í Norðurá. Þann dag komu 15 laxar á land en hópurinn sem opnaði ána var sambland af vönum og óvönum veiðimönnum. Töluvert af laxi sást í ánni og var mikil ferð á þeim upp ána og nú er nokkuð af laxi kominn á svæðið milli fossa. Veiði hélt svo áfram framan af degi í dag og bættust þá 9 laxar við þá sem komnir voru.

Veiði hófst í Blöndu í dag og þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður, mikið vatn og lit, þá komu 10 laxar á land á fyrstu vaktinni.

Veiði hófst í Straumum í dag og í Brennu, Þverá og Kjarrá síðar í vikunni. Fljótlega bætast svo fleiri veiðisvæði við eins og Eystri Rangá, Ytri Rangá, Gufuá og fleiri ár.

Laxinn virðist vera að mæta snemma í ár líkt og síðustu sumur. Sem dæmi um það, þá heyrðum við að veiðimenn á Ósasvæði Laxár á Ásum hafi sett í laxa á svæðinu um síðustu mánaðamót.

Við minnum á að þeir  sem eru á póstlista veiða.is fá afslátt af veiðidögum í Eystri rangá í júní – tilboðið gildir til 8. júní.