Eins og við sögðum frá þá er Hlíðarvatn í Selvogi farið að taka á móti veiðimönnum. Síðustu 2 daga hefur verið mjög kalt við vatnið og lítið veiðst. Nú í dag hitnaði örlítið og þá strax heyrðum við af veiði í vatninu. Nú í kvöld var lofthiti um 4°og vatnshiti rúmar 4° einnig. Suð-austan átt er við vatnið og gengur á með rigningarhriðjum. Veiðimaður sem mátti hefja veiðar kl. 8 í kvöld ákvað fyrst í stað að bíða af sér mestu rigninguna í veiðihúsi þeirra Árbliksmanna en þegar hann kíkti út, að verða hálf níu, þá tók vatnið vel á móti honum.

Af fenginni reynslu þá ákvað hann að byrja veiðar úti í Hlíðarey í þessari vindátt. Hann setti Krókinn undir og hafði Peacock sem dropper. Nánast í fyrsta kasti tók væn bleikja sem reyndist vera um 55cm löng, líklega á bilinu 3,5-4p. „Langt kast, beið í 30 sekúndur og dróg síðan löturhægt inn“. Bleikjan hafði tekið Krókinn. Sumarið var komið hjá þessum veiðimanni.

Myndin hér að ofan er af bleikju sem kom á land í Hlíðarey 5. maí 2012. Við eigum von á fleiri fréttum úr Hlíðarvatni á næstu dögum. Við minnum á lausar stangir í vatninu. Það er um að gera að tryggja sér góða helgidaga nú í sumar.

[email protected]