Við höfum á síðustu dögum birt myndir af stórum urriðum sem hafa verið veiðast víða um land. Enn berast fréttir af vænum fiskum og nú var það Ríkarður Hjálmarsson sem var á ferð í Þjóðgarðinum á Þingvöllum og setti í og landaði 84 cm urriðahæng.

 

Ríkarður er góður veiðimaður en einnig flottur ljósmyndari. Síðasta sumar sáum við nokkrar skemmtilega myndir sem hann tók af bleikjum undir yfirborðinu. Hér að neðan sjáum við nokkrar þeirra aftur, ásamt myndum af urriðanum stóra þegar honum var sleppt aftur í vatnið.

{gallery}rikki{/gallery}

Við þökkum Ríkarði fyrir að deila þessum myndum með okkur.

[email protected]