Hörðudalur er syðstur dala í Dalasýslu. Um hann rennur Hörðudalsá. Í gegnum tíðina hefur Hörðudalsá verið afburðar sjóbleikjuá þó svo að í seinni tíð hafi bleikjuveiðin dalað mikið, eins og víða annarsstaðar á vesturlandi. Í Hörðudalsá er einnig laxastofn og hin síðari ár hefur laxaseiðum einnig verið sleppt í ána. Laxveiðin hefur verið að aukast í Hörðudalsá síðustu 2-3 ár.

Síðasta sumar veiddust 73 laxar í Hörðudalsá. Ástundun var ekki mikil og töluvert var um veiðimenn sem voru að koma í ána í fyrsta skipti. Rafveitt var sumarið 2013 og kom áin vel út í þeim mælingum þannig að ástæða er til bjartýni fyrir næstu ár.

Bókanir eru nú hafnar fyrir komandi sumar og tekur Níels á Seljalandi við bókunum. Hér má sjá nánari upplýsingar um ána og hvert skal beina fyrirspurnum.

[email protected]