Hólaá, og þá fyrst of fremst Úteyjarsvæðið í Hólaá, er eitt besta bleikjusvæðið á suðurlandi.

Yfir sumarið þá er svæðið yfirleitt fullt af bleikju, bæði smárri og stærri bleikju – þá er urriðinn í minnihluta. Þegar kemur inní haustið þá breytast hlutföllin iðulega og meira fer að veiðast af urriða – rigningar og breytingar á vatnshæð Laugarvatns og Hólaár leiða oft til þess að urriðinn sækir í ósinn í miklu mæli – oft er þar fiskur sem er farinn að huga að hrygningu.

Urriðinn er núna mættur niður í Á – við heyrðum í veiðimönnum sem voru á Úteyjarsvæðinu í gær. Þeir settu í urriða í útfallinu og einnig neðar í ánni. Fram undan er haustið – og þau fjölgar urriðanum í ánni.

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem teknar voru á góðum degi, um miðjan september í Hólaá. Við hvetjum alla sem fara til veiða í Hólaá, að hirða urriðann í hófi.