Laxveiðitímabilið er í hápunkti um þessar mundir. Nú er stórstreymi og laxinn vonandi að ganga uppí árnar í auknu mæli. Framundan eru nokkrir lausir dagar og ýmsir möguleikar fyrir veiðimenn sem vilja skella sér í laxveiði.
Vatnsá – Forfallaholl, 11-13. ágúst. Sendið póst á [email protected] fyrir nánari upplýsingar.
Blanda 4 – Fín veiði í Blöndu 4 að undanförnu og vatns og lónsstaða góð. Hollið 12-14. ágúst er laust. sjá hér.
Alviðra, Sog – Seljum staka daga síðar í ágúst. Fín veiði í Soginu undanfarið. Sjá hér
Syðri Brú, Sog – Stakir dagar, 1 stöng. Sjá lausa daga síðar í ágúst hérna.
Hvannadalsá – laus holl nú síðar í ágúst. Sjá hér.
Ytri Rangá – 1 stöng laus 17-19. ágúst. Sjá hér.