Veiðileyfi í Hölkná í Þistilfirði eru nú komin á vefinn okkar en Hölkná er ein af stórlaxaánum á norðausturlandi. Laxveiðiá sem er í dag er veidd með 2 dagstöngum. Hölkná er dragá um 49 km löng og fellur hún í Þistilfjörð hjá Ytra Álandi. Fiskgeng er hún um 12 kom leið, að Geldingafossi. Hölkna er gríðarlega falleg veiðiá, með hátt í 30 merkta veiðistaði.
Fluga er eina leyfilega agnið í Hölkná og skal öllum löxum vera sleppt aftur
Mjög gott veiðihús fylgir með veiðileyfum í ánni. Gistirými er fyrir 4 í tveimur 2ja manna herbergjum.
Hér á vefnum má finna nokkur laus holl í Hölkna í sumar og haust. Seldir eru 2 eða fleiri dagar saman, báðar stangir í senn.