Nokkur holl á Hólmasvæðið og Mávabótaála í Skaftá eru nú komin í sölu hér á vefnum. Um er að ræða 6 stanga sjóbirtingssvæði sem er fyrir neðan Vatnamótin. Svæðið er yfirleitt best þegar líður á júlí og í ágúst – svæðið er göngusvæði – hittingur á sjóbirting sem er að þoka sér upp vatnakerfið. Birtingurinn stoppar oft á svæðinu áður en hann fer upp í Vatnamótin og síðar að hluta til, uppí árnar ofar í kerfinu.

Allt agn er leyfilegt en veiðimenn eru hvattir til að sleppa stórum birtingi og hirða í hófi.

Ágætis aðstaða er fyrir veiðimenn á svæðinu, en langt frá því að vera einhver lúxus.

Stangirnar 6 eru seldar saman, 2 daga í senn og kostar pakkinn einungis 120.000.

Hérna má finna laus holl.