Veiðin í Djúpinu fór rólega af stað en síðustu holl hafa verið að sjá aukið líf, amk. í Hvannadalsá. Síðasta holl landaði 4 löxum og missti nokkra nýrunna laxa – sama má segja um hollin á undan.

Bæði Hvannadalsá og Langadalsá eru ekki síst, síðsumarsár. Veiðin eykst eftir því sem líður á sumarið og nær oft hámarki eftir miðjan ágúst og fram í september. Hér inni á vefnum má finna lausa daga í Hvannadalsá og Langadalsá. Sjá hér.