Veiðin hófst í Hvannadalsá 3 júlí. Veiðimennirnir sem voru í opnunarhollinu sögðust ekki muna eftir svona mikið af laxi, svona snemma á tímabilinu. Það voru nokkrir staðir þar sem þeir sögðu laxinn vera í „bunkum“ – t.d. var að lágmarki 10 laxar í Djúpafossi í gærkvöldi.

Fyrsti laxinn kom á land við Imbufoss, og var það Ágúst Heimir Ólafsson sem náði henni – 82 cm hrygnu.

Áin er mjög köld ennþá og lofthiti lágur – þegar sumarið kemur loksins má búast við að fiskurinn komist á hreyfingu og verði tökuglaðari.

Það eru örfá laus holl í Hvannadalsá í sumar. Frábært veiðihús er við ána. Sjá hér.

Meðfylgjandi eru myndir frá ánni frá því í gær.