Hvítá við Skálholt kom í sölu til okkar síðasta vor. Skálholtssvæðið í Hvítá er steinsnar fyrir neðan Hvítárbrú við Iðu. Svæðið kom fyrst í almenna sölu 2020 á vegum Skálholtsstaðar en hefur verið í útleigu ábúenda í áratugi. Margir fallegir veiðistaðir eru á þessu svæði og sumir þekktir frá fyrri öldum. Veiðin hófst í Hvítá í dag og gekk hún vonum framar.
Feðgarnir Tryggvi Guðmundsson og Guðmundur Haukur Jónsson voru við veiðar í morgun. Leyfilegt agn á þessu svæði er fluga, spúnn og maðkur – þeir feðgar veiddu eingöngu á flugu. Þeir byrjuðu við Torfholt og færðu sig niður að Stekkatúni. Þar á klöppunum og við litla hveri í ánni urðu þeir varir. Þegar við heyrðum síðast frá þeim, þá voru þeir bunir að ná bleikju, vænum sjóbirting og 2 niðurgöngu löxum.
Við erum sífellt að læra á Skálholtssvæðið í Hvítá. Síðustu ár eða áratugi, hefur svæðið veriðí í einkanýtingu og litlar upplýsingar til um svæðið. Veiðin í morgun sýnir vel þá möguleika sem svæðið býr yfir.
Veitt er á 2 stangir á svæðinu og eru þær stangir seldar saman. Hérna má finna lausa daga – það er m.a. laust á morgun, 2. apríl.