Veiðitímabilið er að hefjast á morgun, 1. apríl. Þá, skv. venju, hefst veiði í mörgum sjóbirtings, urriða og bleikjuám, víðsvegar um landið. Breyting frá fyrri árum er hinsvegar sú að á morgun er jafnframt fyrsti veiðidagur í hinum ýmsu veiðisvæðum í Þingvallavatni. Yfirleitt „opnar“ vatnið 15-20. apríl en 1. apríl er dagurinn í ár, fyrir nokkur af svæðunum við vatnið.

Eitt besta urriða veiðisvæði í Þingvallavatni, Svörtuklettar, er nú komið í sölu hér að vefnum. Svæðið er þekkt fyrir miklar aflahrotur og eru mýmörg dæmi um að fleiri en einn og fleiri en 2 veiðimenn hafi sett í stórurriða á sömu mínútunni, þegar torfurnar koma í kastfæri.

Seldar eru 4 stangir á dag á svæðið við Svörtukletta og eru þær seldar stakar, eða saman í pakka. Ef allar 4 eru bókaðar, þá þarf einungis að greiða fyrir 3 stangir. Stangarverðið er á kr. 10-15.000. Hérna má finna lausa daga.