Nú erum við búin að setja leyfin í Hvítá á vefinn, sjá hér. Veitt er með 2 stöngum á svæðinu og eru stangirnar seldar saman í 1 pakka. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Veiðitímabilinu er skipt í 2 hluta: Vorveiðinni, frá 1. apríl og fram í byrjun júní og svo laxatímanum sem hefst 24. júní.

Skálholtssvæðið í Hvítá er steinsnar fyrir neðan Hvítárbrú við Iðu, við Laugarás. Svæðið kom fyrst í almenna sölu 2020 á vegum Skálholtsstaðar en hefur verið í útleigu ábúenda í áratugi. Margir fallegir veiðistaðir eru á þessu svæði og sumir þekktir frá fyrri öldum. Síðustu 2 sumur þá höfum við og aðrir veiðimenn verið að læra á svæðið og mun klárlega taka aðeins meira tíma að vera fullnuma á svæðinu. Vorveiðin í fyrra kom skemmtilega á óvart, en strax 1. apríl gerðu veiðimenn flotta veiði, eins og lesa má hérna.

Hérna má finna dagana í Hvítá við Skálholt.