Nú  þegar hlýnað hefur á suðurlandi, þá hefur veiðin tekið vel við sér á ýmsum okkar svæða. Undanfarna daga hefur verið fín veiði í Útey í Hólaá – bæði urriðar og Birtingar komið á land. Veiðin á Torfastöðum í Soginu hefur verið fín og á aðeins eftir að verða betri. Svo fengum við fréttir frá veiðimanni sem kíkti á Hvítá við Skálholt í dag.

Alfreð Elíasson, veiðimaður og gæt, kíkti við í Hvítá í dag. Alfreð er gríðarlega duglegur og iðinn veiðimaður – skannar svæði vel og er góður að finna fisk. Hann lenti í aldeilis ævintýri við Hvítá í dag. Við veiðistaðinn Stekkatún, stað nr 4 á veiðikortinu, þá fann hann mikið af fiski. hann var á ferð um svæðið og sá smá hreyfingu sem gæti hafa verið fiskur, og ákvað að kasta á staðinn. Niðurstaðan, eftir um 4 tíma veiði, var 2 birtingar og 9 niðurgöngulaxar – og margir fiskar misstir. Alfreð veiðir á flugu og í dag var veitt djúpt og hægt.

Frábært að heyra af góðri veiði í Hvítá, en við hvetjum alla til að fara meðhöndla vorfiskinn, bæði birting og lax, með varkárni og sleppa öllu sem veiðist.

Hér eru lausir dagar í Hvítá.

hér að neðan eru nokkrir fiskar sem veiðst hafa á Torfastöðum, Hólaá og Hvítá síðustu daga.