Hvolsá og Staðarhólsá eru fínar haustveiðiár. Vatnsleysi í dölunum getur stundum hægt á veiði á þurrum sumrum, en þegar rigningartíðin hefst í lok ágúst og í September, þá rýkur laxinn uppí árnar, úr lóninu, og dreifir sér á alla helstu veiðistaði. Þetta er nákvæmlega staðan núna. Vatnsstaðan er góð og lax má finna mjög víða og segja kunnugir menn að langt sé síðan að jafn mikið af laxi hafi gengið uppí árnar.
Erlendir veiðimenn sem voru við veiðar í ánum yfir helgina veiddu vel og veiðimenn sem tóku við þeim í gær, á hádegi, voru komnir með 13 laxa í hádeginu í dag. Mjög góð veiði það.
Um 3 vikur eru eftir af veiðitímanum og þó svo að allir helgidagar í September séu bókaðir, þá má finna lausa virka daga. Hægt er að bóka 2 eða 4 stangir í Hvolsá og Staðarhólsá í September. Hérna má sjá lausa daga.