Veiðin í Ytri Rangá er búin að vera mjög góð í sumar, um 4.800 laxar voru komnir á land um hádegisbil í gær, eingöngu á flugu. Frá og með seinni vaktinni í gær mátti svo einnig veiða á spún og maðk í Ytri Rangá. Allur dagurinn í gær gaf 208 laxa þar af gaf seinni parturinn 164 laxa. Eins og þekkt er, þá er alltaf handagangur í öskjunni þegar spúnninn og maðkurinn koma í ána. Má búast við að veiðitölur muni núna hækka hratt í Ytri Rangá.

Ekkert er laust í September í Ytri, en hérna má finna lausa daga í Október.