Hollið sem var að ljúka veiðum í Hvolsá og Staðarhólsá í dag á hádegi, 27. ágúst, endaði með 42 laxa á stangirnar fjórar. Aldeilis frábær veiði. Eins og víða á vesturlandi þá hefur vætuleysi haft áhrif á vatnsmagn í Hvolsá og Staðarhólsá en eins og við höfum áður sagt, þá hefur ekki vantað laxinn í lónið og í árnar. Þegar fór svo að rigna á svæðinu þá datt allt í gang. Veiddist vel uppí ánum en einnig í lóninu. Sem dæmi kom um 15 laxar á land á veiðistað nr 39 í Hvolsá. Nú er haustið að nálgast óðfluga og ljóst að rigningardögum á eftir að fjölga. Hérna má finna lausa daga í Hvolsá og Staðarhólsá í haust.