Smá veiðifréttir úr Djúpinu

Langadalsá – Það var kalt fyrir vestan í lok síðustu viku og um helgina og veiðin frekar róleg, en um leið og vestan áttin tók yfir í fyrradag, og það hlýnaði um 2 gráður, þá fór allt í gang. 3 fiskar komu á land á skömmum tíma og nokkrir aðrir voru misstir. Síðasta holl þar á undan fékk 11 fiska og voru mjög sáttir.  Meðfylgjandi er mynd af einum smá laxi sem kom á land í gær. Besti tíminn er framundan í Langadalsá.

Við erum með 2 holl á Betra Verði í Langadalsá. Hollið sem byrjað á hádegi á morgun er laust og þar gætu veiðimenn bókað 2 stangir (2+2 stangir). Hollið 4-7 ágúst er einnig á Betra verði. Sjá hér.

 

Hvannadalsá hefur verið í fínum gír frá opnun og hafa flest holl farið frá ánni sátt. Nokkrir maríulaxar hafa komið á land undanfarna daga og hollin hafa verið að skila frá 3 upp í 6 löxum eftir 2 daga á 2 stangir. Besti tíminn í Hvannadalsá er framundan. Hérna má finna lausa holl í ánni.