Nú er 20. júlí og orðið nokkuð ljóst að sumarið í sumar verður ágætt laxveiðisumar, ekki síst á suður og vesturlandi. Hér á vefnum má finna lausa daga í fjölmargar laxveiðiár – Straumar, veiðin þar er frábær. Við eigum laust í ágúst. Brennan, veiðin þar er einnig frábær og við eigum einnig lausa daga í ágúst. Ytri Rangá, veiðin þar er mjög góð núna og best tíminn framundan. Við eigum laust næstu daga og í byrjun júlí. Gufuá hefur verið að gefa vel síðustu daga, eigum daga lausa í ágúst. Laugardalsá, mikið af fiski er gengin uppí Laugardalsá og verslunarmannahelgin er laus ásamt dögum um miðjan ágúst.

Fljótaá, eigum lausa daga um næstu helgi. Hólsá, eigum lausa daga ma.a 23-26. júlí. Flugu, maðkur og spúnn. Norðurá, áin er smekkfull af laxi og við eigum daga í byrjun og lok ágúst. Frábært tækifæri til að skella sér í Norðurá á góðu verði. Sendið okkur póst fyrir nánari upplýsingar. Skógá, eigum lausa daga á næstunni og í ágúst. Hvolsá og Staðarhólsá, eigum daga í ágúst. Hörðudalsá, eigum daga í júlí og ágúst.

info at veida.is