Eftir fremur kalt og rólegt vor þá hefur veiðin í Brúará fyrir landi Spóastaða hægt og rólega verið að aukast. Undanfarnar 2 vikur eða svo hafa ýmsir veiðimenn verið að gera fína veiði. Einna helst hefur svæðið fyrir ofan brú og einnig Hrafnaklettar verið að gefa. Veiðimenn, margir hverjir, hafa verið að ná 4-10 bleikjum yfir daginn. Við minnum „nýja“ veiðimenn á svæðinu að nýta sér reynslu reyndari veiðimanna við ána – hér er hægt að fá smá veiðilýsingu og hér má sjá hvað er laust á næstunni í Brúará fyrir landi Spóastaða.