já, þó þessari laxveiðivertíð sé víða lokið þá er veiði enn í gangi í örfáum ám, Ytri Rangá og Fossá eru þar á meðal. Við erum með lausa daga í Ytri Rangá nú í október. Um er að ræða 13-16. okt og 19-20. okt. Veiðin í Ytri hefur verið mjög góð til dagsins í dag. Í gær komu yfir 30 laxar á land, þrátt fyrir rok og rigningu og á laugardaginn komu yfir 50 laxar á land. Heildaveiði er komin í um 8.300 laxa. Fossá er önnur á þar sem enn má veiða en leyfilegt er að veiða til 15. okt þetta árið. Þar eru lausir dagar framundan. Veitt er á 2 stangir í Fossá og leyfilegt agn er fluga. Veiðimenn sem voru við veiðar á laugardaginn náðu 12 löxum. Sendið póst á info at veida.is fyrir nánari upplýsingar.

 

info at veida.is