Laxinn virðist vera byrjaður að raða sér uppí laxveiðiárnar, bæði á suður, vestur og norðurlandi. Eftir nokkra daga hefst veiðin í Straumunum í Borgarfirði og þann 3ja júní hefst veiðin í Norðurá. Nú vorum við að fá nokkrar stangir til okkar í endursölu á aðalsvæði Norðurár, bæði í hollið 15-18. júní og hollið 21-24. júní. Sendið okkur endilega póst á [email protected] fyrir nánari Upplýsingar um þessar stangir sem voru að koma í endursölu.
Í vetur og vor hefur ný glæsileg gistiálma verið byggð við veiðihúsið við Rjúpnaás við Norðurá. Einnig hefur veiðihúsið sjálft fengið yfirhalningu ásamt því að nú stendur veiðimönnum til boða að láta þreytuna, eftir langan veiðidag, líða úr sér í nýju Sauna sem tilbúið er til notkunar. Það mun s.s. fara enn betur um veiðimenn í sumar í veiðihúsinu við Rjúpnaás.