Veiðin í Hlíðarvatni hófst þann 1. mai og frá fyrsta degi hefur veiðin verið nokkuð góð í vatninu. Auðvitað hefur veður spilað töluverða rullu, eins og oft er, en þegar lægir og birtir, þá fer bleikjan yfirleitt að taka á fullu. Þessa veiðisögu hér að neðan birti Kjartan Þorvarðarson á Facbook fyrir stuttu síðan:
„Var í Hlíðarvatni í gær og í dag, ekki var það nú veiðilegt. Í gær var hávaðarok og sóknin eftir því einungis við Árbliksmenn úti og fuglarannsóknafólk sem var að reyna að fanga himbrima til merkinga. Enda var aflinn eftir því tveir tittir sem fengu frelsi aftur, í morgun var svo komin rigning af stærri gerðinni þannig að það var haldið heim aftur. Um hádegisbil var útlitið skárra og var aftur haldið til veiða, byrjað í Botnavík og svo veitt út og yfir í Skollapolla. Þá var s…ólin farin að glenna sig aðeins og skyndilega byrjuðu uppítökur allt í kring, fyrsta takan var tæplega pundfiskur sem fékk aftur frelsið og næsta rúmlega pund, hún fór í pokann. Svo komu nokkrar litlar sem einnig fengu frelsi og þá gerðist það þessi líka væna bleikjan rauk út með línuna og kom svo í rólegheitum að aftur lá mjög þungt í og sýndi sig aðeins einu sinni svo fór hún að haga sér eitthvað einkennilega fannst mér miklir kippir og synti fram og til baka. Þá sá ég að þær voru tvær önnur vel væn og hin væn líka á Hlíðarvatnsmælikvarða og leist nú ekki á blikuna að koma þeim báðum í háfinn. Svo hægðist nú á látunum og hún fór að synda í hringi, eftir nokkrar mínútur sá ég að minni fiskurinn var farinn af en neðri flugan föst í botni. Dýpið var ekki meira en það að ég gat komist að henni þar sem hún var orðin alveg uppgefin og gat komið henni í háfinn en varð að slíta neðri fluguna frá. Þessi barátta var búin að standa í um tuttugu mínútur og asskoti var nú góð tilfinning að handleika þennan fisk eftir daprann fyrri dag og dökkt útlitið framan af þessum. Nú dró ský fyrir sólu og það var eins og við manninn mælt ekki varð vart við meiri fisk.
Það er rétt að það fylgi með að hún mældist 58 cm og 2,7 kg, ummálið var 30 cm.„