Laxá í Laxárdal, í Skefilsstaðahreppi er 2ja stanga laxveiðiá sem fellur í Skagafjörð. Veiði í Laxá hefur verið góð síðustu árin og árið í ár hefur einnig farið vel af stað. Veiðitímabilið í Laxá er stutt, en einungis er Veitt í um 45 daga, frá 10. júlí og fram til 25 ágúst. Laxaá er tiltölulega löng 2ja stanga laxveiðiá og er rúmgott um stangirnar.
Bændur við ána skipta dögunum á milli sín og hérna á vefnum má finna lausa daga í ánni en núna eru dagarnir 7-10. og 16. ágúst einu lausu dagarnir. Seldir eru heilir stakir dagar.
Undanfarna daga hefur verið að veiðast ca. 2 laxar á stöng á dag og að auki hafa veiðimenn verið að setja í sjóbirtinga og bleikjur.





