Veiðimálastofnun birti í dag samantekt yfir laxveiðina í sumar. Samantektin byggir á bráðabirgðatölum sem nú liggja fyrir. Skv. samantektinni þá veiddust um 69 þús laxar á stöng nú í sumar en það er um 100% aukning frá síðasta sumri. Um 18 þús af þeim löxum sem veiddust var sleppt aftur.Veiðin í sumar var 42% meiri en meðaltalsstangveiði áranna 1974-2012.

Af þeim 69 þús löxum sem veiddust, komu um 12 þús. laxar úr ám sem byggja veiði á sleppingum gönguseiða sem alin eru í eldisstöðvum. Enn fremur kemur fram að sumarið 2013 var 4. besta stangveiðisumarið á þeim 40 árum sem mælingar taka yfir. Einungis árin 2008-2010 voru betri.

Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar þessa samantekt þá er hana að finna inni á veidimal.is

[email protected]