Í dag dansaði Jóhannes Sturlaugsson við urriða á Þingvöllum. Þingvallaþjóðgarður hefur undanfarin haust boðið uppá fræðslugöngu um Þingvallaurriðann í samvinnu við fyrirtæki Jóhannesar, Laxfiska ehf. Í þessari göngu hefur Jóhannes fjallað um risaurriðann sem á rætur sínar í Öxará, frætt viðstadda um lifnaðarhætti hans og tilhugalíf í Öxará og leyft áhorfendum að komast í snertingu við nokkra aldna höfðingja. Í dag, þegar gangan var farinn, var stillt og gott veður á Þingvöllum og fjölmargir áhugamenn um urriðann mættu á fræðslufundinn. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá því í dag.

 

{gallery}urr{/gallery}

Eins og menn vita, sem fylgdust með veiðifréttum frá því í sumar, þá voru fjölmargir stórir urriðar drepnir af veiðimönnum í sumar. Síðustu ár hefur fjölgað í urriðastofnum vatnsins og fleiri stórir urriðar eru því að veiðast en áður. Eins og veiðimenn vita, þá er stóri urriðinn enginn matfiskur, reyndar er hann óhæfur til manneldis. Því vonum við að veiðimenn hugsi sig tvisvar um næsta vor, áður en þeir drepa þessa höfðingja vatnsins. Fyrir þá sem vilja fanga þá töfrastund þegar stórum urriða er náð, þá er um að gera að hafa alltaf myndavél í vasanum þegar haldið er til veiða í Þingvallavatni og smella nokkrum myndum áður en honum er skilað í vatnið aftur.

[email protected]