Laxveiðin rúllaði af stað í byrjun mánaðarins og nú fer hver áin á fætur annari að „opna“, þó veiðin hefjist í flestum á milli 20 og 30 júní. Í heildina má segja að opnanir hafi verið framar vonum – Veiðin í Norðurá, Þverá og Blöndu var flott í opnun og síðan hafa flottir laxar verið að veiðast t.d. í Brennu og Straumunum í Borgarfirði.

Meðfylgjandi maríulax kom á land í Straumunum í gær, 10 juní – Þessi ungi veiðimaður heitir Sölvi Hrafn Arnarsson.  Sölvi veiddi þessa flottu 77 cm hrygnu ofarlega á Straumasvæðinu. Aðstæður eru ekki þær auðveldustu – mikið vatn í ám á svæðinu og í dag er suðvestan strekkingur, 10-14 ms.

Áhugavert verður að fylgjast með framvindu mála í laxveiðiám landsins – lax er að sjást víða, í þeim ám sem eiga eftir að opna. T.d. í Soginu, Ytri Rangá, Laxá í Aðaldal og ýmsum ám á vesturlandi. Hérna má finna laus laxveiðileyfi á Vefnum.