Veiðitímabilið í Svartá í Skagafirði hófst núna í byrjun mánaðarins. Svartá er 4-6 stanga urriðáá sem „breytist“ í Húseyjarkvísl, neðan við fossinn Reykjafoss, Veiðisvæði Svartár nær frá Reykjafossi, að neðanverðu, að Ýrarfellsfossi í Svartárdal. Svæðið er um 20km langt.
Eftir kaldan maí mánuð, þá tók júní vel á móti veiðimönnum. Flestir þeir sem lagt hafa leið sína að ánni hafa sett í flotta fiska. Svartá er ekki á þar sem þú getur búist við magnveiði, heldur er hún þekkt fyrir stóra fiska. Að neðan má sjá nokkra fiska frá síðustu dögum.




