Veiði hófst í Miðfjarðará þann 15. júní. Veðrið var ekki til að hrópa húrra fyrir þann dag, norðanátt og hitinn á bilinu °3-6 yfir daginn. Fyrir opunardaginn hafði lax sést á nokkrum stöðum í ánni, og voru því veiðimenn hóflega bjartsýnir við upphafi veiðidags. Veitt er á max 6 stangir fyrstu dagana í Miðfjarðaránni. Í lok veiðidags höfðu veiðimenn landað 25 löxum og misst slatta. Flestir laxana voru á bilinu 80-90 cm langir.
Veiðin var svo áfram góð í gær og á þjóðhátíðardaginn 17 júní og ef fram heldur sem horfir þá mun opnunarhollið vera með ríflega 70 laxa, en það líkur veiðum á hádegi 18. júní. Frábær opnun í þessari mögnuðu laxveiðiá. Þess má geta að Miðfjarðará hefur verið ein aflahæsta laxveiðiá landsins síðustu árin. Í fyrra komu 3.765 á land, sumarið 2016 komu 4.338 á land. Metárið 2015 komu 6.028 á land en það ár, var opnunarhollið einungis með 18 laxa.
Mynd: Rafn Valur Alfreðsson með einn ný-runninn frá degi 2 í Miðfjarðará.