Veiðin mun hefjast í Ytri Rangá nú í vikunni. Fyrstu laxarnir sáust í Djúpósnum í byrjun júnímánaðar og eru staðarhaldarar því vongóðir um ágætir opnun árinnar. Ytri Rangá hefur verið fullbókuð í júní, júlí og ágúst, nánast frá síðasta sumri, en eins og oft gerist þá forfallast veiðimenn og losnar þá um stangir. Það var að gerast núna.

Erlendur hópur sem var með stangir á tímabilinu 6-11. júlí kemst ekki og því eigum við lausar stangir á þeim tíma. Þær stangir er hægt að finna hérna inni á vefnum. Stangirnar seljast í 1 1/2 til 3ja daga pökkum. Ef þú vilt nánar Upplýsingar, sendið endilega póst á [email protected]