Nú vorum við að setja inná vefinn, staka daga í Minnivallarlæk í sölu. Nú í April og fram í maí, standa yfir framkvæmdir á húsinu við Minnivallalæk og þess vegna verða stakir dagar seldir, án gistingar.
Veiðin hefst í Minnivallarlæk þann 1. apríl. Veitt er með 4 stöngum í læknum. Yfirleitt eru stangirnar 4 seldar saman í pakka, í 2-3 daga í senn. Vegna þeirra framvæmda sem standa yfir við húsið, þá verður núna í apríl og fram undir miðjan maí, seldir stakir dagar. Suma daga eru seldar stakar stangir. Aðra daga eru 2 stangir seldar saman í pakka.
Verð veiðileyfa núna í vor eru kr. 20.000 stöngin á dag. Eingöngu er veitt á flugu í Minnivallarlæk.
Veiðimenn hafa aðgang að húsinu, sem einskonar afdrep en ekki er mögulegt að gista þar.