Munaðarnessvæðið í Norðurá tilheyrir Norðurá II fram til 6. júlí þegar það fellur inní Norðurá I. Svæðið er neðarlega í Norðurá, nær frá Engjanefi og til og með Kálfhylsbroti. Veitt er frá morgni til kvölds, ekkert veiðihús er á svæðinu. Síðustu daga hefur verið ágæt veiði á svæðinu enda fiskur að ganga upp ána á hverjum degi. Hér á myndinni til hliðar er veiðimaður með 67 cm hæng sem tók Sunray á Kálfsbrotinu í gær. Örfáir dagar eru lausir á svæðinu fram til 6. júlí. Sendið póst á info at veida.is.

info at veida.is