Veiðin í Hlíðarvatni í Selvogi hefur oft á tíðum í sumar verið með afbrigðum góð. Um helgina var Ásgeir Ólafsson við veiðar við vatnið og veiddi hann fjölmargar vænar bleikjur ásamt nokkrum smærri. Staðir sem voru m.a. að gefa voru Hlíðarey, Kaldós og Botnavík. Hér til hliðar er mynd af einni bolta bleikju sem Ásgeir náði um helgina.

Það er lausir dagar framundan í Hlíðarvatni. 2 stangir og afnot af veiðihúsi, í einum pakka, á kr. 12-14. þús. Hér má sjá lausa daga.

[email protected]