Myrarkvisl, sem oft og iðurlega er álitinn síðsumarsá Á þegar að laxinum viðkemur, skilaði sínum fyrsta laxi á land í dag, 18. júní. Kom hann á land á veiðistað nr 4, Klettshyl. Myrarkvisl er einnig frábær urriðaá og vorið og júní mánuður hefur verið mjög gjöfull tími – mikið af vænum urriðum komið á land.
Urriðaveiðimenn sáu fyrstu laxana í Mýrarkvísl fyrir nokkrum dögum síðan, en það var ekki fyrr en Beggi gæt í Myrarkvisl fór að skima eftir löxum, með veiðimanni sem hann var að gæta, að sett var í fyrsta laxinn kvíslinni þetta sumarið. Væn hrygna tók fluguna.
Áhugaverður tími er framundan í Myrarkvisl. Nú munu urriðaveiðimenn, sem yfirleitt sækja ána heim fram í byrjun júlí, efalaust reyna meira við laxinn. Laxinn sem gengur uppí Myrarkvisl, gengur í gegnum hluta af Laxá í Aðaldal. Nú í vikunni opnar hún formlega og munum við fylgjast með fréttum þaðan.
Hérna má finna veiðileyfi í Myrarkvisl.
Mynd: Veiðimaður með fyrsta laxinn úr Myrarkvisl sumarið 2018