Sumarið 2012 var metár í Norðfjarðará þegar 1.142 bleikjur veiddust og 11 laxar að auki. Sumarið í sumar var jafngott og því ljóst að Norðfjarðará er að stimpla sig inn sem ein albesta sjóbleikju á landsins. Norðfjarðará fellur til sjávar í Norðfjörð, innanverðan, en stutt er þaðan út í Neskaupstað. Upptök hennar er á hálendinu inn af firðinum. Á leið hennar til sjávar falla í hana Selá og Hengifossá ásamt nokkrum smærri lækjum. Veitt er með 3 stöngum í Norðfjarðará og veitt er á flugu, maðk og spún.

Í sumar komu 1.125 bleikjur á land og 15 laxar og þó svo að „allt“ agn sé leyft þá er flugan lang skæðasta agnið í ánni og flestar bleikjurnar veiðast á flugu. Norðfjarðará er þekkt fyrir litlar sveiflur í veiði og ekki er sjáanlegt að niðursveiflan sem hefur heimsótt hefur all flestar bleikjuár á landinu, hafi komið þar við. Trúlega má rekja þennan stöðugleika að miklu leyti til þess að efsti hluti árinnar, ca. 3 km, er friðaður fyrir allri veiði og fá því uppeldisstöðvarnar í ánni að vera alveg í friði sem gerir það að verkum að áin er mjög sjálfbær. Sjá nánari upplýsingar um Norðfjarðará hérna.

[email protected]