Nú er loksins komið í ljós hver verður næsti leigutaki Flekkudalsár, Tunguár og Kjarlaksstaðaár á Fellsströnd í Dalasýslu. Útboðið var auglýst þann 1. júní. Tilboð voru opnuð í byrjun júlí og nú er búið búið að semja við nýjan leigutaka til 3ja ára. Nýr leigutaki er félagið Fiskiflugur en Sigurður Héðinn og Hilmar Bragi Janusson eru þar í forsvari. Eins og áður sagðir þá er samingurinn við félagið til 3 ára. Leiguverðið pr. ár er um 8 m. kr. sem er ca. 10% lækkun frá fyrri samningi.
Veitt er með 3 stöngum í Flekkunni og er eingöngu veitt á flugu í ánni. Meðalveiði frá 2002-2008 var 242 laxar í Flekkudalsá skv. angling.is. Ekki er þar að finna nýlegri tölur.