Nú nálgast laxveiðitímabilið óðfluga en einungis eru rétt um 2 mánuðir þar veiðin hefst í fyrstu ánum. Snjóalög benda til þess að vatnsbúskapur verði líkleg góður vel inní sumarið og spár fiskifræðinga gera ráð fyrir mjög góðum smálaxagöngum í ár. Hvað getur eiginlega farið úrskeiðis? Jú, það er skaðræðis veira sem er hrella alla heimsbyggðina. Ekki er hægt að fullyrða hvernig mál þróast erlendis eða hversu hratt hún gengur yfir, en hér heima þá gera nýjustu spár ráð fyrir að faraldurinn muni ganga niður í lok apríl, eða þegar kemur inní maí. Við vonum það besta. En í ljósi stöðunnar, þá er ljóst að í ár verða færri erlendir veiðimenn á ferð um landið en undanfarin ár sem leiðir að sjálfsögðu til að meira úrval veiðileyfa verður til fyrir íslenska veiðimenn.
Norðurá I – stangir á betra verði
Norðurá er eins og flestir veiðimenn vita, ein albesta laxveiðiá landsins með yfir 2.000 laxa meðalveiði, undanfarin 15 ár. Veiðimenn frá öllum heimshornum sækja ána heim, ár hvert en þeir verða færri en venjulega, þetta sumarið – sérstaklega vegna veirunnar. Í því ljósi erum við með nokkur holl í Norðurá I á betra verði – Hérna má finna þau holl – Þessi holl eru bæði í júní, lok júlí og í ágúst
Einnig munum við líklega vera með nokkrar forfallastangir í júlí frá erlendum veiðimönnum – sendið okkur póst á [email protected] til að fá upplýsingar um þær stangir.
Norðurá II – Fjallið
Við erum einnig með nokkur holl á Fjallinu, í júlí og ágúst á tilboðsverði. Á fjallinu er veitt með 3 stöngum og dvelja veiðimenn útaf fyrir sig. Seldir eru 2 – 3 dagar saman. Gott veiðihús fylgir sem er fullkomið fyrir fjölskyldur og fyrir veiðihópa. Við bjóðum uppá afslátt af nokkrum hollum í ágúst, sjá hérna.
Hafið endilega samband fyrir frekari upplýsingar.
Norðurá II – Munaðarnes
Við eigum enná nokkra lausa daga á Munaðarnessvæðinu í Júní. Seldar eru 3 stangir saman, stakir dagar frá morgni til kvölds. Greitt er fyrir 2 stangir en heimilt að veiða á 3 stangir. Frábært svæði með mikla og góða veiðivon. Sjá lausa daga hérna.









