Vestmannsvatn er nýtt í Veiðikortinu 2014. Vatnið er á mörkum Reykjadals og Aðaldals í Suður-Þingeyjarsýslu. Vestmannsvatn er gríðarlega gott veiðivatn. Mest er af bleikju og urriða í vatninu en einnig veiðist þar lax þegar líður á sumarið. Reykjadalsá, ein besta urriðaá landsins, rennur í vatnið og úr vatninu rennur síðan í Eyvindarlæk. Vatnið er um 2,4 km2 að flatarmáli og um þriggja metra djúpt að meðaltali. Mest dýpi er 10 m. Veiði er heimil í öllu vatninu og leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Sjá nánar hérna.

Við minnum svo ykkur öll á að þið fáið Veiðikortið 2014 á betra verði. Fullt verð er kr. 6.900 en þið fáið kortið á kr. 5.990. Eina sem þið þurfið að gera er að senda okkur póst á [email protected]

[email protected]