Ný veiðiá á veiða.is er Deildará á Sléttu. Deildará fór í opið útboð fyrir um ári síðan en undanfarin 27 ár hefur áin verið í einkaleigu hjá erlendum veiðimanni. Fáir íslenskir veiðimenn hafa því veitt í ánni síðustu áratugina en nú verður breyting þar á. Veitt er á 3 stangir í Deildará og leyfilegt agn er fluga. Hér má lesa nánar um ána og hérna má finna laus holl í Deildará sumarið 2016.