Nú höfum við tekið 2 ný veiðisvæði í sölu hér á veiða.is – Annars vegar Syðri og Nyrði Ófærur og hinsvegar Blautulón, bæði á Skaftártunguafrétti.
Silungasvæði Ófæru er fjögurra stanga veiðisvæði og eru stangirnar seldar 2 saman. Veiðisvæðið samanstendur af Syðri-Ófæru annarsvegar og Nyrðri-Ófæru hinsvegar. Góð veiði hefur verið á svæðinu undanfarin ár og er fyrst og fremst um fallega bleikju að ræða.
Einstök náttúrufegurð er á svæðinu, Ófærufoss er einstaklega fallegur foss í ánni Nyrðri-Ófæru og fellur í tveimur fossum ofan í Eldgjá. Í hylnum fyrir neðan fossinn leynast oft vænar bleikjur og er þar um einn stórbrotnasta veiðistað landsins að ræða.
Verð veiðileyfa er kr. 9.800 fyrir 2 stangir, eða kr. 4.900 á stöngina.
Blautulón eru tvö talsins og eru á Skaftártunguafrétti á hálendinu. Þau eru þétt setin af frekar smárri bleikju, en þó leynast stærri ránbleikjur og stöku urriði inn á milli.
Þetta eru fjölskylduvæn lón, enda fá flestir sem reyna einhverja veiði. Umhverfi þeirra er hið klassíska eldfjallalandslag, svartir sandar og eitur grænn mosi.
Verð veiðileyfa er einungis kr. 1.500 á dag
Ath. þegar Ófærur eru bókaðar, þá fylgir leyfi í Blautulónum með.