Torfastaðasvæðið í Soginu er 2ja stanga svæði sem er á milli Álftavatns og Bíldsfells, á vesturbakka Sogsins. Svæðið er fyrst og fremst þekkt fyrir góða bleikjuveiði en einnig veiðist sjóbirtingur og lax á svæðinu.
Veiðin hófst á Torfastöðum 1. apríl. Mikið vatnsmagn hafði töluverð áhrif á veiðina framan af apríl en síðustu daga hefur vatnsmagnið verið meðfærilegt. Þegar magnið er á bilinu 100-125 rúmmetrar, þá er svæðið vel veiðanlegt.
Síðasta fimmtudag kíkti veiðimaður á svæðið í ca. 3 klst. Sá veiðimaður var fyrst og fremst að kanna hvort hann myndi finna sjóbirting. Hann byrjaði að kasta svolítið fyrir neðan ármótin, ofarlega á svæðinu. Hann var með sökklínu og orange Dýrbýt undir – í öðru kasti setti hann í fisk, þokkalegan birting, en hann fór af eftir snarpa viðureign. Eftir nokkur köst í viðbót setti hann í annan fisk, annan birting, ca. 3 pund sem var landað og sleppt. Í lok þessa ca. 3 tíma var hann búinn að landa 3 birtingum og missa 2 aðra og fá nokkrar tökur í viðbót. Flott veiði.
Síðasta föstudag kíkti Ólafur Hilmar Foss á svæðið, við annan mann. Ólafur þekkir svæðið vel, gerði flotta veiði þar í fyrrasumar. Ólafur ætlaði að einbeita sér að hólmasvæðinu, neðri hluta Torfastaða. Framan af degi gekk lítið, en fljótlega eftir að „makkerinn“ fór, þá fóru hlutirnir að gerast. Mest af bleikjunni á Torfastöðum kemur uppúr Álftavatni til að nærast, í strengjum og straumröstum víða á svæðinu – vatnsmagnið, hitastig og tími árs hefur klárlega áhrif á bæði magn og stærð bleikju sem kemur inná svæðið – þegar kemur inní sumarið þá er nánast hægt að ganga að bleikjunni á sumum stöðum en snemma á vorin þarf að hafa meira fyrir hlutunum.
Á hólmasvæðinu, þá er aðal állinn milli Torfastaða á vesturbakka, og Ásgarðs á austurbakka, mjög austarlega á svæðinu. Hann liggur með austurlandinu. En gefum Ólafi orðið,
“Ég fékk fljótlega fisk þegar ég var kominn neðst Ásgarðsmegin á Atlas #16, næsti fiskur tók 5 mínútum seinna og svo datt allt líf niður á ný. Ég fór í gegnum svona 5-7 fluguskiptingar og ekkert gerðist næsta klukkutímann, ég færði mig síðan ofar, setti Atlasinn aftur undir og þá var eins og einhver hefði rekist í „on“ takkann… Síðustu 3 klst setti ég í 12-14 fiska og landaði annaðhvort 6 eða 7 35-50cm…”
Nú þegar vorið kemur inn af krafti, þá mun klárlega kvikna vel á Soginu og ekki síst á Torfastaðasvæðinu. Hérna má finna leyfin á Torfastaði.
Hérna má finna leyfi á vorveiðina á Bíldsfellssvæðinu, en veiðin hefst þar 10. maí.



