Síðustu ár hefur upstream veiði eða andstreymisveiði, færst mikið í vöxt. Í staðinn fyrir að veiða á hinn classíska máta með því að kasta niður fyrir sig, ca. 45°, þá kasta veiðimenn uppí strauminn og taka slaka línunnar jafnóðum inn. Með þessu móti ná veiðimenn flugunni nær botninum þar sem bæði bleikjan og urriðinn er oft í æti. Til að auka líkur á að vera var við nettar tökur, þá er tökuvari, e. Strike Indicator, settur ofarlega á tauminn. Margar útfærslur eru til af tökuvörum en þetta er sú útfærsla sem við mælum með.

Þessi Strike Indicator (tökuvari) kemur frá Nýja Sjálandi eins og margar aðrar nýjungur í heimi fluguveiðimannsins. Helstu kostir hans eru:

  • Það er auðvelt að setja hann á tauminn.
  • Það er auðvelt að breyta um staðsetningu.
  • Það er mjög auðvelt að breyta stærðinni á honum.
  • Það er mjög auðvelt að fjarlægja hann.
  • Hann skemmir ekki línu eða taum.
  • Það er mjög létt að kasta honum.
  • Svo umfram allt þá flýtur hann gríðarlega vel.

Kíkið á þetta kynningarmyndband hérna,

{avsplayer videoid=125 playerid=1}

Þessi tökuvari er til í Veiðibúð veiða.is

[email protected]