Í dag voru tilboð opnuð í útboði Laugardalsár við Ísafjarðardjúp. Áin fór í útboð í lok september eftir að útséð var að Lax-á myndi ekki geta verið með hana næsta sumar. Útboðið náði eingöngu til ársins 2014. Skv. því sem kemur fram inni á V&V, þá bárust 10 tilboð í ána. Þau tvö hæstu voru frá Guðmunda Atla Ásgeirssyni. Annað þeirra var frávikstilboð uppá 11,5 m.kr. til fimm ára en hitt var uppá 9,5m fyrir eitt ár.

 Doppler var með þriðja hæsta tilboðið uppá 9,1 m.kr.

Það er sama hvoru tilboðanna frá Guðmundi Atla veiðifélagið tekur, það getur vel við unað. Þó svo að líkur séu á að margir innan veiðifélagins hefðu viljað getað endurnýjað samstarfið við Lax-á að ári, þá er varla hægt að slá hendinni á móti tilboði sem hækkar leiguverðið, miðað við síðasta samning, um nærri 15%.

Inná V&V er fleiri upplýsingar um útboðið og tilboðsgjafa.

[email protected]