Þó að markmið með stangveiðiferðum sé nú yfirleitt það að veiða fisk, þá vill það nú stundum til að eitthvað annað festi sig á snærið. Haukur Þórðarson lenti í smá ævintýri í Hlíðarvatni á dögunum og deilir hér sögunni með okkur.

 

Hvorki Fugl né Fiskur
Veiðigyðjan að stríða mér. Ég lenti í því í Mývatnssveitinni í síðustu viku að þegar ég er að kasta út að línan lendir í önd sem flýgur niður ánna og festist í henni í nokkrar sec. síðan núna um helgina er ég að veiða í Hlíðarvatni og þá kemur hópur af æðarkollum syndandi með ströndinni, þær synda að flugulínunni hjá mér og snúa síðan við þegar þær sjá línuna. Þær ákveða að synda utar og komast framhjá þessari hindrun, þegar þær komast út fyrir línuna gerist mjög undarlegur hlutur, þær fara að synda beint í áttina að mér sinnhvoru megin við línuna. Ég ákvað að hreyfa ekkert við línunni til að minnka líkurnar á því að þær flækist í henni. Þegar fugla hópurinn fer síðan frá línunni kemur í ljós að endinn á flotlínunni hjá mér eltir hópinn, ég verð því að toga á móti og kemur þá í ljós að ein æðarkollan er föst í flugunni. Það hefjast mikil læti hjá þessum fugli þegar hann reynir að losa sig og endar með því að ég verð að slíta línuna því ekki langaði mig að fara að reyna að landa fuglinum. Hérna eru nokkrar myndir sem ég tók af atburðinum í Hlíðarvatni.

Haukur Þórðarson

Myndatexti:
1. Æðarhópurinn búinn að synda á línuna alveg við land og tók ákvörðun að fara út fyrir.
2. Hópurinn á leiðinni út fyrir línuna
3. Hópurinn tekur stefnu til mín eftir línunni
4. Kominn með æðarkollu á fluguna
5. Fuglinn farinn út í vatnið alveg brjálaður.
6. Átök í gangi, fuglinn buslar í vatninu.
7. Ákvörðun tekin að slíta línuna, líklega eina leiðin.

 {gallery}haukur{/gallery}

[email protected]