Veiðivötn opna í dag. Að venju er mikil spenningur fyrir opnun vatnana og öll veiðileyfi fyrir löngu uppseld. Veiðivötn er vatnaklasi norðan Tungnaár á Landmannaafrétti. Alls eru vötn og pollar á svæðinu 50 talsins. Vötnin liggja í aflangri dæld sem er breiðust um 5 km og um 20 km löng frá Snjóölduvatni í suðvestri að Hraunvötnum í norðaustri. Þau eru í 560-600 m hæð yfir sjávarmáli. Austan Veiðivatna liggur Snjóöldufjallgarður en Vatnaöldur vestan þeirra.

Sumarið og haustið 2012 veiddust 25.009 fiskar í Veiðivötnum sem var nokkru minni veiði en árin þar á undan. Á stangaveiðitímanum veiddust 19.647 fiskar. Meðalþyngdin í fyrra var 1,96 pund en mest var hún í Grænavatni eða 4,54 pund. Stærsti fiskur sumarsins kom þar einnig á land en hann vóg 16,4 pund.

Lang mest veiddist í Litlasjó í fyrra en alls komu 7.795 fiskar þar á land og þar af komu 6.298 á stöng.

Við munum birta ykkur fréttir og myndir af veiði í Veiðivötnum á næstu dögum.

[email protected]