Nú höfum við tekið í sölu hér á veiða.is, nýtt stangveiðisvæði við Selfoss. Um er að ræða veiðisvæði þar sem netaveiði hefur verið stunduð að hluta, í tugi ára. Svæðið sem um ræðir er á austurbakka Ölfusár. Efri mörk þess eru rétt fyrir neðan sjúkrahúsið á Selfossi og þau neðri, rétt fyrir neðan kirkjugarðinn.
Veiðisvæðið: Um er ræða 2ja stanga svæði sem byrjar ca 600-700 metra fyrir ofan brúna við Selfoss, og nær niður á tangaroddan þar sem kirkjugarður Selfoss er. Veiðimenn eru hvattir til að fara varlega við veiðar – Ölfusá er mikið vatnsfall og straumþung á köflum og gott að nota flotvesti þegar vaðið er. Aðal veiðisvæðið er þó þar sem áin liðast um grinningar og fiskur gengur um netta ála og stoppar á brotum, nálægt austurbakkanum, á leið upp ána. Gríðarlega mikið af fiski gengur upp með austurbakkanum á þessu svæði, að sögn kunnugra, enda er straumþunginn og boðaföllinn mikil vestan meginn.
Sumarið og haustið mun að sjálfsögðu fara í að kortleggja veiðisvæðið og fá dýrmæta veiðireynslu, enda hefur þetta svæði að mjög takmörkuðu leyti verið veitt á stöng. Verið er að taka mikilvæg skref í þá átt að breyta nýtingu þessa svæðis í Ölfusá, úr netasvæði í stangveiðisvæði. Ef vel tekst til, þá mun það að sjálfsögðu koma öllum, bæði veiðimönnum og eigendum landsvæði við Ölfusá og Hvítá, til góða.
Veiðireglur: Veitt er með 2 stöngum á dag og eru þær seldar saman í pakka. Verði veiðileyfa er stillt í hóf en hver stöng kostar frá kr. 18.900 til 32.900. Fluga er eina leyfilega agnið og skal öllum laxi sleppt. Fluga fer einkanlega vel á svæðinu fyrir ofan brú og mælt er með léttari tvíhendum eða einhendum með góðri skotlínu. Veiðitíminn er staðlaður: 7-13 og 16-22 og síðan færist seinni vaktinn yfirá 15-21 þegar kemur inn undir lok ágúst.
Hérna má bóka daga á svæðinu í sumar – við vonum að veiðimenn taki vel við sér og prófi svæðið í sumar.