Nú eru veiðileyfi í Fossá í Þjórsárdal komin í sölu hér á vefnum fyrir veiðitímabilið 2022.

Fossá skiptist annars vegar í laxasvæði, sem er fyrir neðan Hjálparfoss, og silungasvæði, sem er fyrir ofan Hjálparfoss. Veitt er með 2 stöngum á hvoru svæði fyrir sig og er fluga eina leyfilega agnið. Veiðimenn skulu jafnframt sleppa öllum fiski.

Veiðin á laxasvæði Fossár eru oft mjög góð. Veiðisvæðið er tiltölulega stutt, en gríðarlega fallegt. Best og mest er laxveiðin iðulega síðsumars. Vorveiðin á Laxasvæðinu er oft mjög góð einnig. Veiðist þá urriði, bleikja og sjóbirtingur.

Hérna má sjá lausa daga og verð.

Silungasvæði Fossár er vinsælt hjá hópi veiðimanna þó svo að stór hluti svæðisins sé lítið stundaður, vegna erfiðs aðgengis. Til að veiða góðan hluta svæðisins, þá þarf að ganga nokkuð. Sjá nánar hérna.