Laxá í Kjós var ein þeirra Áa sem opnaði í dag. Mikil eftirvænting var á bökkum hennar þegar veiðimenn voru að gera sig klára í morgun, enda hefur sést til töluvert af laxi í ánni á síðustu dögum. Aðstæður voru góðar í dag, fínt vatn í ánni og hitastigið rétt. Fyrsti laxinn tók eftir örfá köst, það var Þórdís Ólafsdóttir á Valdastöðum sem náði honum. Tók hann rauða Frances túpu. Samtals komu 6 laxar á morgunvaktinni sem er fín byrjun í ánni. Við tókum stöðuna á Jón Þór Júlíussyni nú í kvöld til að kanna hvernig eftirmiðdagurinn hefði gengið.

Jón Þór sagði að samtals væru 10 laxar komnir á land og veiðimenn hefðu misst fjölmarga aðra. Laxinn tók fremur grant í dag. Fiskar voru að veiðast víða, t.d. á Klingenbergbreiðunni, Neðra Gljúfri, Laxfossi, Pokafossi og í Kvíslarfossi. Laxinn virðist koma vel haldin úr sjó þetta sumarið og veit það á gott fyrir framhaldið. Nú bíða menn spenntir eftir því að sjá hverju jónsmessustraumurinn skilar í árnar.

[email protected]