Elliðaárnar opnuðu í morgun og er ljóst að mikið af fiski er komin í ána, að minnsta kosti er mikið af honum í Sjávarfossi. Fyrsti laxinn tók kl. 7:03 í morgun og var það Reykvíkingur ársins, Ólafur Ólafsson, sem veiddi hann á maðk. Sex laxar voru komnir úr ánni fyrir kl. 7:48 sem er frábær byrjun í ánni og kl. 10:00 voru allar stangir komnar með fullan kvóta úr ánni. Samtals komu 830 laxar úr Elliðaánum í fyrra.

 

 

Myndirnar hér að neðan tók Ásmundur Helgason.
{gallery}ellida{/gallery}

[email protected]