Veiði hófst í Norðurá í dag kl. 11 en áður en veiðimenn tóku fyrstu köstin, þá var nýja herbergisálman í veiðihúsinu við Norðurá, vígð. Að því loknu hófst veiðin. Gylfi Sigurðsson var heiðurs“veiðimaður“ dagsins. Eftir nokkur köst á brotinu, setti hann í rígvænan lax sem hann togaðist á í ca. 20 mínútur áður en hann missti hann niður úr þar sem hann sleit úr honum. Eftir nokkur köst til viðbótar setti hann í annan lax, sá reyndist 87 cm langur – glæsilegur lax – eftir nokkrar myndir, var honum sleppt aftur í ána.

Lax var að sýna sig víða á svæðinu í morgun, þar sem Gylfi var við veiðar – fleiri veiðimenn eru við ána en við höfum ekki enn fengið fréttir frá þeim ennþá.

Eigum lausa daga í Norðurá nú í Júní

Mynd: Af Facebook, „veiðidellan er Frábær“ – póstað af Ólafur Arnarson